Valur fyrsta liðið til að leggja ÍBV á tímabilinu
Val­ur og ÍBV mættust í ní­undu um­ferð Olís deild­ar kvenna í hand­knatt­leik í Voda­fo­ne-höll­inni í dag en leiknum lauk með stórsigri Vals, 28-17. Ester �?skardóttir meiddist í upphitun og kom ekkert við sögu í leiknum fyrr en á 40. mínútu.
ÍBV skoraði fyrstu tvö mörk leiksins en Valur jafnaði metinn 3-3 og eftir það var jafnræði með liðunum og þau skiptust á að hafa eins marks forystu framan af fyrri hálfleik. �?að sem einkenndi leikinn var mikil hraði og mikið var um sóknarfeila á báða bóga og hefðu mörkin átt að vera mun fleiri í fyrri hálfleik en staðan í hálfleik var 11-8 fyrir Val.
Valsstelpur komu mun ákveðnari inn í síðari hálfleik og skoruðu fyrstu þrjú mörkin og var forskotið þá orðið sex mörk og í raun allt of mikið fyrir lið ÍBV sem voru ekki upp á sitt besta í dag en stelpurnar áttu aldrei möguleika í síðari hálfleik. Valur náði mest þrettán marka forskoti undir lok leiks, 28-15 en lokatölur voru 28-17.

Nýjustu fréttir

„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna
Laxey meðal þátttakenda á Lagarlífi í Hörpu
Leggja til óbreytt útsvar á næsta ári
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.