Í dag tók Flugfélagið Ernir við flugleiðinni milli lands og Eyja og af því tilefni var haldin mótttökuathöfn í flugstöðinni. Hörður Guðmundsson, eigandi og framkvæmdastjóri Flugfélagsins Ernis sagði í stuttu ávarpi að hann lofaði því að flugfélagið myndi standa sig í samgöngumálum við Vestmannaeyjar. Elliði Vignisson, bæjarstjóri bauð hið nýja félag velkomið en flugfélagið bauð Eyjamönnum að skoða Jetstream 32 skrúfuþotuna sem notuð verður á flugleiðinni.