
Um þessar mundir stendur yfir útboð Vegagerðarinnar á flugleiðinni milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Samningurinn á að ná til flugs næstu þrjá vetur, frá 1. desember 2026 til og með 30. nóvember 2029. Útboðið tekur einungis til þriggja mánaða tímabils, frá 1. desember til 28. febrúar á hverju ári. Samkvæmt útboðinu skal notast við að lágmarki 9 sæta flugvél og bjóða upp á fimm flug í viku, líkt og kveðið var á um í fyrri samningi, sem jafngildir 45 sætum á viku.
Reynsla síðustu ára og sú óvissa sem ríkt hefur um langt skeið með siglingar til Landeyjahafnar sýnir að fimm flug í viku á 9 sæta vélum í þrjá mánuði á ári, uppfyllir ekki raunverulegar samgönguþarfir íbúa og fyrirtækja í Eyjum. Flugsæti þann vikudag sem flogið er fram og til baka fara fljótt og færri komast að en vilja.
Íbúar Vestmannaeyja þurfa reglulega að sækja heilbrigðisþjónustu og aðra opinbera þjónustu á höfuðborgarsvæðið. Í Vestmannaeyjum er öflugt atvinnulíf og mikilvægur iðnaður sem krefst greiðra samgangna. Ófullnægjandi samgöngur bitna því á öllu samfélaginu í Eyjum.
Tilboðsfrestur Vegagerðarinnar vegna flugs til og frá Vestmannaeyjum rennur út 17. mars næstkomandi. Í ljósi þeirra erfiðleika sem oft skapast í samgöngum yfir vetrartímann tel ég nauðsynlegt að útboðið verði endurmetið og lagað betur að þörfum fólks og fyrirtækja. Ég tel mikilvægt að fjölga flugferðum og bjóða þær yfir lengra tímabil.
Möguleiki á tveimur ferðum fram og til baka oftar en einu sinni í viku er lykilatriði fyrir jafn öflugt samfélag og Vestmannaeyjar eru. Með lítilli breytingu á tilboðinu mætti betrumbæta ferðamöguleika til og frá Eyjum svo um munar. Með bættum samgöngum styrkjum við atvinnulíf, þjónustu og byggðir landsins.
Karl Gauti Hjaltason
Þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi.