Fortíð Vestmannaeyja lifnaði við á sýningu Hlyns
Gamlar ljósmyndir, þjóðhátíðarminningar, frímerki og persónuleg málverk vöktu athygli gesta í Akóges á Goslokahátíð
Frábærar myndir frá Þjóðhátið. Hlynur og Þór Vilhjálmsson, fyrrum formaður Þórs og ÍBV.

Ein athyglisverðasta listasýning Goslokahátíðar var sýning Hlyns Ólafssonar í Akóges þar sem gestum gafst kostur á að rifja upp sögu Vestmannaeyja í gegnum ljósmyndir, myndbönd, frímerkjahönnun og málverk. Sýningin sameinaði á áhrifaríkan hátt menningarsögu Eyjanna og persónulega listsköpun Hlyns. Stærsti hluti sýningarinnar var helgaður gömlum ljósmyndum sem Hlynur hefur safnað og unnið með í gegnum árin. Myndirnar sýndu daglegt líf í Vestmannaeyjum, mannlíf, atvinnulíf, götumyndir og samfélagið eins og það var á liðnum áratugum.

Margir gestir stöldruðu lengi við myndirnar og rifjuðu upp eigin minningar, en um leið gaf sýningin yngri kynslóðinni tækifæri til að kynnast sögu bæjarins á lifandi og myndrænan hátt.

 

Þessi mynd er einstök. Krakkar sem unnu við hreinsun á Heimakletti sumarið 1975. Nöfnin frá vinstri: Valgeir Örn Garðarsson, Bjartey Sigurðardóttir, Hörður Óskarsson, Indriði Birgisson, Valdís Leifsdóttir, Svava Bogadóttir, Halla Svavarsdóttir og Hlynur Ólafsson. Fyrir framan er Sámur hennar Höllu.

Þjóðhátíð og frímerki

Þjóðhátíð skipaði veglegan sess á sýningunni. Þar voru sýndar fjölmargar ljósmyndir frá hátíðinni í gegnum tíðina, auk myndbands sem vakti athygli gesta. Þar mátti sjá ógleymanleg augnablik frá stærstu útihátíð landsins og fylgjast með þróun hennar í gegnum árin. Á sýningunni voru einnig sýnishorn af þeim frímerkjum sem Hlynur hefur hannað fyrir Íslandspóst. Þau bera skýrt vitni um vandaða grafíska hönnun og þá nákvæmni sem hefur einkennt störf hans um áratugaskeið. Hlynur hefur auk þess komið að fjölmörgum verkefnum á sviði grafískrar hönnunar, merkjahönnunar, útgáfu og myndskreytinga. Hann hefur hannað fjölda merkja og tákna sem tengjast Vestmannaeyjum og íslenskri menningu.

 

 

Hlynur ávarpar gesti á opnun sýningarinnar. Mynd Óskar Pétur.

Sneri aftur að málverkinu

Hlynur hóf nýlega að mála á ný eftir um fjögurra áratuga hlé, meðal annars fyrir hvatningu eiginkonu sinnar, Þórdísar Magnúsdóttur, sem jafnan var kölluð Dísa og lést fyrir fáum árum. Öll málverkin á sýningunni urðu til á síðasta ári og eru hluti af uppgjöri hans við æskuna í Vestmannaeyjum, eldgosið 1973 og þá einstöku reynslu sem hann varð fyrir þegar hann var á björgunarvakt með Hjálparsveit skáta gosnóttina.

Verkin eru persónuleg og áhrifamikil og sýna aðra hlið á listamanninum en margir þekkja. Þar fá tilfinningar, minningar og lífsreynsla að njóta sín á striganum.

 

Málverk og ljósmyndir frá Þjóðhátíð. Mynd Óskar Pétur.

Langur og farsæll ferill

Hlynur Ólafsson fæddist í Vestmannaeyjum 12. ágúst 1956 og ólst þar upp. Fyrstu spor hans í myndlist voru á kvöldnámskeiðum í Arnardrangi hjá myndlistahópi undir stjórn Páls Steingrímssonar. Síðar sótti hann ljósmyndanámskeið og starfaði einnig við kennslu á slíkum námskeiðum. Hann nam grafíska hönnun við Myndlista- og handíðaskóla Íslands á árunum 1984 til1988, eftir að hafa áður starfað hjá Flugfélagi Íslands og Flugleiðum.

Að námi loknu vann hann hjá auglýsingastofum áður en hann stofnaði eigið hönnunarfyrirtæki. Á löngum ferli hefur hann unnið að fjölbreyttum verkefnum á sviði grafískrar hönnunar, myndskreytinga og útgáfu, auk þess að hanna fjölda frímerkja fyrir Íslandspóst.

Þótt Hlynur hafi búið um árabil á höfuðborgarsvæðinu hefur hann ávallt haldið sterkum tengslum við heimabæ sinn. Það endurspeglaðist vel á sýningunni í Akóges þar sem Vestmannaeyjar voru rauði þráðurinn í gegnum ljósmyndir, hönnunarverk og málverk.

Nýjustu fréttir

Fortíð Vestmannaeyja lifnaði við á sýningu Hlyns
Lundaveiði heimiluð þrátt fyrir neikvæða umsögn Náttúrustofu
Mikilvægur sigur ÍBV gegn Víkingi R.
Terra segir upp samningi við Vestmannaeyjabæ
Dalurinn – nýtt app fyrir þjóðhátíðargesti
Elena Rut – Langar að spila fyrir íslenska landsliðið í framtíðinni
Síld farin að hrygna suður af landinu
Halldór Hjörleifsson er Eyjamaðurinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.