Förum varlega í umferðinni - sérstaklega í kringum skólana
Mynd - Lögreglan í Vestmannaeyjum

Tvö fíkniefnamál komu upp í vikunni sem leið og var í báðum tilvikum um svokölluð neyslumál að ræða en lögreglan fór í þrjár húsleitir í liðinni viku vegna rannsóknar fíkniefnamála.

Einn fékk að gista fangageymslur í vikunni sem leið en hann hafði verið í annarlegu ástandi og fékk því gistingu þar til rann af honum víman.

Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í vikunni en óhappið varð um borð í Herjólfi síðdegis þann 20. ágúst sl. Þarna hafði bifreið runnið á aðra bifreið, en gleymst hafði að setja bifreiðina í handbremsu. Ekki varð mikið tjón á ökutækjunum vegna atviksins.

Tvær kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum eftir vikuna og er í öðru tilvikinu um að ræða brot á stöðvunarskyldu en í hinu tilvikinu notkun farsíma í akstri án handfrjáls búnaðar.

Í síðustu viku var Grunnskóli Vestmannaeyja settur og má því búast við að gangandi vegfarendum fjölgi á leið til og frá skóla. Lögreglan vill því beina því til ökumanna að fara varlega í umferðinni og þá sérstaklega í kringum skólana. Sérstaklega skal minnt á gangbrautarréttinn og eru ökumenn hvattir til að virða hann.

Fyrsta september nk. breytist útivistatími barna og ungmenna þannig að börn, 12 ára og yngri, mega ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20.00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn, sem eru á aldrinum 13 til 16 ára, skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22.00, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.