Fótboltaskóli ÍBV og HKK
aefing_yngri_flokkar_2023_herjolfsholl_final
Ungdómurinn á æfingu í Herjólfshöllinni. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslunar Karls Kristmanns verður haldinn páskavikuna, 25-27. mars nk. en þá verður frí í skóla sem og á æfingum. Hér er frábært tækifæri til að brjóta upp daginn fyrir krakkana sem og efla þau í fótboltanum, segir í frétt á vefsíðu ÍBV.

Fótboltaskólinn er fyrir krakka í 1-8. bekk og fá allir þátttakendur gefins páskaegg.

Nákvæm tímasetning verður sett upp eftir að fjöldi þátttakenda liggur fyrir. Gera má ráð fyrir að æfingar verði á milli klukkan 10-15 hvern dag. Þátttakendum verður skipt upp eftir aldri og væntanlega kyni einnig.

Stjórnandi skólans verður Óskar Elías Zoega og munu leikmenn og þjálfarar meistaraflokks karla stjórna æfingum, en sérstök áhersla verður lögð á tækniæfingar og mun fjöldi þjálfara vera á hverri æfingu til að þær skili sem mestu fyrir börnin.

Skráningafrestur er til 13. mars og þau sem bóka fyrir þann tíma er tryggt páskaegg. Verð er aðeins 5.000 kr.

Þetta er tilvalin páskagjöf til krakkanna frá mömmu og pabba eða afa og ömmu. Þar sem gjöfin inniheldur þá öflugan fótboltaskóla sem og páskegg fyrir hátíðina.

Við hvetjum ykkur því til að skrá ykkar barn hið fyrsta. Skráning fer fram hér

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.