Frábær árangur ÍBV stelpna

Í tilkynningu frá ÍBV segir að stelpurnar í 5. og 4.flokki hafa náð einstaklega góðum árangri í sumar. Nú þegar líða fer að lokum tímabilsins eru A-lið beggja þessara flokka í keppni um íslandsmeistaratitil. 5.flokkur leikur gegn Víking í undanúrslitum þann 10. september kl 14:45. ÍBV vill hvetja alla þá sem hafa geta að mæta og styðja við stelpurnar okkar í þessum leik. Þær eiga það svo sannarlega skilið. 4.flokkur kvenna er kominn alla leið í 6-liða úrslit og þær mæta Breiðablik-2 miðvikudaginn 6.september kl 16:00 í Kópavogi. Við sendum þeim okkar allra bestu hugsanir fyrir þann leik.

Nýjustu fréttir

Hundrað ára afmæli Jónínu í myndum
Sumarlokanir leikskólanna í Eyjum liggja fyrir
Futsal mót knattspyrnudeildar ÍBV fer fram á morgun
Fyrsti kjarasamningur sjómanna á smábátum frá 2012
Líkn færir sjúkradeild HSU í Eyjum tvö ný tæki
Vont veður hrakti Eyjarnar af Gerpisflakinu
Handverks- og vörumarkaður í Höllinni
Steinunn sló botninn í Safnahelgina með húmor og frásagnargleði
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.