Frábær byrjun hjá ÍBV stelpunum heldur áfram - Heimasigur gegn Þór/KA
Kristín Klara Óskarsdóttir í leiknum í dag. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í fótbolta sigraði Þór/KA, 2-0, í fjórðu umferð Bestu deildar kvenna á Hásteinsvelli í dag. Eyjakonur voru með mikla yfirburði í upphafi leiks en markvörður Þór/KA, Allesandra Doherty Augar, sá til þess að að fyrsta mark ÍBV kom ekki fyrr en eftir hálftíma leik. Olga Sevcova geystist þá upp vinstri vænginn og kom boltann inn á teiginn og engin önnur en Allison Grace Lowrey setti boltann í netið og kom Eyjakonum í 1-0. Þannig stóðu leikar í hálfleik. 

Seinna mark ÍBV kom á 69. mínútu leiksins. Allison Patricia Clark átti þá langa sendingu yfir völlinn á Olgu Sevcovu sem kom boltanum á Erlu Hrönn Unnarsdóttur. Erla náði lítilli snertingu á boltann og tíaði boltann upp á Olgu og hún kláraði af miklu öryggi fram hjá markverði Þór/KA. Lokatölur leiksins 2-0 og fjórði sigur ÍBV kominn í hús. Frábær byrjun hjá nýliðunum.

Eyjakonur eru á toppi deildarinnar með tólf stig en Þór/KA situr í níunda sæti deildarinnar með tvö stig. Leikur Stjörnunnar og FH fór fram á sama tíma þar sem FH fór með sigur af hólmi, 1-2. Umferðin klárast á morgun.

Næsti leikur ÍBV er útileikur gegn FH, þriðjudaginn 19. maí kl. 18:00.

ÍBV 2 – 0 Þór/KA

1-0 Allison Grace Lowrey (’30 )

2-0 Olga Sevcova (’69 )

Nýjustu fréttir

Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
50 ár frá opnun sundlaugar Vestmannaeyja
Ingunn Ása – Mjög gaman að vera valin í Landsliðið
Fortíð Vestmannaeyja lifnaði við á sýningu Hlyns
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.