Frábær sigur á Haukum
Haukar tóku á móti ÍBV í Olís deild karla í dag þar sem ÍBV hafði betur 21-19. �?etta var fyrsti sig­ur ÍBV á leiktíðinni eft­ir tvo tap­leiki á heima­velli.
ÍBV byrjaði leikinn miklu betur og voru að spila virkilega góða vörn og markvarslan í samræmi við það. Strákarnir skoruðu fyrstu þrjú mörk leiksins og voru yfir nánast allan leikinn en ÍBV leiddi með sex mörkum í hálfleik, 11-5.
Haukar byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti og náðu að minnka muninn í eitt mark, aftur tóku Eyjamenn við sér og þegar fimmtán mínútur voru eftir var staðan 16-13. Haukarnir náðu svo að jafna á 51. mínútu og komust svo yfir þegar um um fimm mín­út­ur voru eft­ir. Andri Heim­ir jafnaði met­in um leið og Dag­ur Arn­ars­son kom svo ÍBV yfir tveim­ur mín­út­um fyr­ir leiks­lok, 20:19.
ÍBV náði að standa vörn sína og það var svo Dagur sem tryggði þeim sigurinn, 21-19 sem voru lokatölur.
Mörk ÍBV skoruðu þeir; Theodór Sigurbjörnsson 9, Andri Heimir Friðriksson 4, Einar Sverrisson 2, Dagur Arnarsson 2, Magnús Stefánsson 2, Grétar �?ór Eyþórsson 1 og
1 -Kári Kristján Kristjánsson

Nýjustu fréttir

Sterkara íþróttasamfélag fyrir alla
Frábær endurkomusigur ÍBV gegn Víkingi
Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskis virði?
Krefjandi aðstæður við borun
Jóný bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2026
Guðný Geirsdóttir hjá ÍBV út 2027
Góð stemmning á herrakvöldi fótboltans
Í gær höfðu 96 kosið utan kjörfundar í Vestmannaeyjum
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.