Frábæru Orkumóti lokið - FH varð Orkumótsmeistari
FH varð Orkumótsmeistari 2026. Ljósmynd/Óskar P. Friðriksson

Orkumótið í fótbolta fór fram í 43. sinn í Vestmannaeyjum dagana 25. – 27. júní þar sem strákar í 6.flokki, eldra ári,  fjölmenntu til Eyja. Alls voru 1100 keppendur, þjálfarar eða fararstjórar sem lögðu leið sína á mótið í ár. 

Skrúðgangan fór fram á fimmtudagskvöldið. Gengið var frá Barnaskólanum og endað á Hásteinsvelli, þar sem mótið var sett. Lúðrasveit Vestmannaeyja leiddi gönguna. 

Landsleikur Orkumótsins, leikur milli Landsliðs og Pressuliðs, fór fram á Hásteinsvelli á föstudagskvöldið við frábærar aðstæður. Pressuliðið fór með 6-3 sigur af hólmi og sýndu strákarnir allar sínar bestu hliðar í leiknum. ÍBV átti tvo fulltrúa í landsliðinu, þá Lúkas Goða Harðarson og Sigurð Andrason og stóðu þeir sig með mikilli prýði. Eftir landsleikinn fór fram kvöldvaka þar sem Tónhylur tróð upp og var mikil stemning.

Á laugardeginum fóru fram úrslitaleikir mótsins. FH og Fram léku til úrslita um sjálfan Orkumótsbikarinn og var það FH sem stóð uppi sem sigurvegari Orkumótsins 2026 með 4-1 sigri. Að loknum úrslitaleiknum var grillveisla við Týsheimilið áður en allir héldu heim á leið.

Óskar Pétur Friðriksson smellti nokkrum myndum af úrslitaleiknum.

 

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri
Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
Frá borholusjó til flögusalts
46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar
Júníus Meyvant með tónleika í Alþýðuhúsinu
Fyrsti leikurinn undir stjórn Bergvins
Loppumarkaður á Heiðarvegi um helgina
Opna fjöldahjálparstöð í Arnardrangi á laugardag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.