Frændurnir og meistarakokkarnir í hópi þeirra bestu
Frændurnir og snilldarkokkarnir Gísli Matthías og Sigurður.

„Þar sem maðurinn minn er óhóflega hlédrægur og sér enga ástæðu til þess að monta sig af einu eða neinu finnst mér ég algjörlega tilneydd til þess að deila þessum pósti. Í kvöld var viðburður þar sem útgáfu bókarinnar, 25 Best Chefs – Iceland var fagnað með einstökum kvöldverðarviðburði á Vox Brasserie, þar sem sjónum er beint að fremstu matreiðslumönnum landsins,“ segir Berglind Sigmarsdóttir eiginkona Sigurðar Gíslasonar á Fésbókarsíðu sinni á fimmtudaginn. Saman eiga þau veitingastaðinn Gott í Vestmannaeyjum.

„Bókin er gefin út af hinum virta breska útgefanda Peter Marshall sem kom sjálfur til landsins í tilefni útgáfunnar og var heiðursgestur kvöldsins. En Peter kom til okkar á Gott í sumar, tók viðtal og myndir af réttum Sigga fyrir bókina. Peter hefur m.a. gefið út 25 bestu kokkar Finnlands, Úkraínu og svo framvegis. Peter hefur unnið með matreiðslumönnum alla sína starfsævi og er ánægður að kynna safn sitt af uppskriftabókum.“

Berglind segir Peter reyndan matarljósmyndara og hefur ljósmyndað uppskriftir eftir nokkra af bestu matreiðslumönnum heims. Hann sé einnig stoltur af því að hafa hleypt af stokkunum Chef Magazine í Bretlandi. „Það er að sjálfsögðu mikill heiður að vera valinn í þessa bók þar sem mikil flóra er af framúrskarandi matreiðslumönnum á Íslandi og gaman að þeir frændur Siggi og Gísli Matthías séu báðir í bókinni. Gísli tók einmitt sín fyrstu kokkaskref í eldhúsinu hjá Sigga frænda sínum og Siggi tók sín fyrstu kokkaskref í eldhúsinu hjá Grími bróður sínum. Svo við getum bara með sanni sagt;  “It runs in the family,“ segir Berglind.

Heimasíða þeirra er. https://25bestchefs.com/who-are-we

 

 

Myndin er tekin á Gott. Með Sigurði eru Peter Marshall og Lesia Hrebeniuk sem vinnur bækurnar með Peter.

 

 

Sigurður með bókina góðu.

 

 

Frændurnir voru meðal þeirra sem sáu um að kokka á heiðurskvöldverðinum.
Matseðillinn á heiðurskvöldverðinum á Vox Brasserie.

 

Nýjustu fréttir

Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
Staða mála hjá Herjólfi
Embla Harðardóttir sleit krossband gegn FH
Rannsóknarhola Eyjaganga komin á beinu brautina á ný
Herjólfur með sjö ferðir til Landeyjahafnar í dag
Geta Eyjastúlkur haldið pressunni á Breiðablik?
Díana Dögg og Andrea spila oddaleik um þýska meistaratitilinn
Herjólfur til Þorlákshafnar
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.