Opinn framboðsfundur Eyjafrétta vegna sveitarstjórnarkosninganna 2026 fer fram í Eldheimum í dag, fimmtudaginn 14. maí, kl. 17:00.
Á fundinum munu fulltrúar frá Eyjalistanum, Miðflokknum og Sjálfstæðisflokknum takast á um helstu málefni bæjarins í aðdraganda kosninganna sem fram fara næstkomandi laugardag.
Fundargestum gefst kostur á að leggja fram spurningar til frambjóðenda og verður sérstök áhersla lögð á málefnalegar og hnitmiðaðar umræður. Húsið opnar kl. 16:45.
Samkvæmt dagskrá fundarins fá framboðin fyrst tækifæri til að kynna sín helstu áherslumál áður en tekið verður við spurningum milli framboða og frá fundargestum. Fundinum lýkur með lokaorðum frá frambjóðendum.
Eyjafréttir hvetja Vestmannaeyinga til að mæta og taka þátt í umræðum um framtíð samfélagsins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.