Framboðslisti Eyjalistans ákveðinn
Eyjalistinn, félag sem byggt er á félaghyggju, jafnarstefnu og samvinnu, býður fram lista við bæjarstjórnarkosningarnar í Vestmannaeyjum sem fram eiga að fara hinn 26. maí næst komandi undir listabókstafnum E.
Listinn er skipaður breiðum hópi frambjóðenda með margs konar reynslu og menntun. Frambjóðendurnir eiga það allir sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á hagsmunamálum Vestmannaeyja og að vinna ötullega að því að efla og styrkja bæjarfélagið. Eyjalistinn hefur nú á að skipa nýju fólki í forystusveitinni en um leið mun listinn njóta reynslu þeirra sem áður hafa unnið ötullega að bæjarmálum.
Eyjalistinn mun í öllu starfi sínu leggja áherslu á lýðræðislega stjórnarhætti þar sem hagsmunir heildarinnar verða hafðir að leiðarljósi. Frambjóðendur listans bjóða því fram krafta sína í þágu samfélagsins alls og leitar eftir góðri samvinnu við alla bæjarbúa.
Nú þegar er hafin öflug og opin málefnavinna Eyjalistans. Sú vinna heldur áfram fram að kosningum og verður stefnuskrá Eyjalistans birt þegar nær þeim dregur.
�?eir bæjarbúar sem áhuga hafa á þátttöku í málefnavinnu Eyjalistans og hafa með því bein áhrif á stefnumótun í málefnum Vestmannaeyja til framtíðar eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við einhvern frambjóðenda.
Kosningamiðstöð Eyjalistans verður að Vestmannabraut 37 og verða opnunartímar hennar auglýstir innan tíðar.
Eyjalistinn er þannig skipaður:
1. Njáll Ragnarsson sérfræðingur á Fiskistofu
2. Helga Jóhanna Harðardóttir grunnskólakennari
3. Stefán �?skar Jónasson verkstjóri
4. Arna Huld Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur
5. Nataliya Ginzhul
6. Guðjón �?rn Sigtryggsson bílstjóri
7. Lára Skæringsdóttir grunnskólakennari
8. Haraldur Bergvinsson
9. Anton Egertsson
10. Hafdís Ástþórsdóttir
11. Jónatan Guðni Jónsson grunnskólakennari
12. Drífa �?öll Arnardóttir bókavörður
13. Guðlaugur Friðþórsson
14. Sólveig Adólfsdóttir húsmóðir

Nýjustu fréttir

Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.