Framsetningin hefði mátt vera skýrari
Gróf tölvuunnin mynd af móttöku og flokkunarstöðinni við Eldfellsveg sem gefur vísbendingu um hvaða breytingar verða á ásýnd. Búið er að færa aðkomu að svæðinu norðar ásamt flokkunaraðstöðunni fyrir almenning. Aðstaða á vinnusvæðinu bætt með frágengnu yfirboði, steyptum efnishólfum, byggingu sem er aðstaða fyrir starfsemina við flokkunarsvæðið og tekið til á svæðinu næst hraunmyndunum til hægri á myndinni.

Fram kemur í frétt á vef Vestmannaeyjabæjar að gjaldskráin sem er á heimsíðunni gildir eingöngu fyrir fyrirtæki ekki íbúa.

Vestmannaeyjabær hefur ekki verið með sérstaka íbúagjaldskrá enda hafa íbúar ekki greitt fyrir að henda sorpi á móttökustöð en nú þarf að breyta því eins og áður hefur komið fram.

Á næsta fundi framkvæmda- og hafnarráðs verður lögð fram íbúagjaldskrá. Íbúar hafa ekki verið rukkaðir og verða ekki rukkaðir fyrr en íbúagjaldskrá tekur gildi. Íbúagjaldskrá mun endurspegla raunkostnað við að flytja sorp á förgunarstað og að förgun þess eins og lög gera ráð fyrir. Þessar breytingar á gjaldtöku og umgjörð tengdu sorpinu hafa tekið lengri tíma en áætlað var. Á næstu mánuðum verður boðinn út rekstur á sorphirðu og sorpförgun. Þegar nýr rekstarasamningur liggur fyrir verður gjaldskráin tekin upp og samræmd nýjum verðum frá rekstraraðila.

Framsetningin á gjaldskráinni hefði mátt vera skýrari og hefði verið hægt að koma í veg fyrir þær áhyggjur sem íbúar eðlilega hafa að þeirri gjaldskrá sem birt er á vef Vestmannaeyjabæjar.

Nýjustu fréttir

Stærsti kosturinn að geta búið í Eyjum 
Líkamsrækt við Hástein skrefi nær – tveir sátu hjá
Spegilmyndir í morgunblíðunni
Bleikur blær í Skipalyftunni
Fallegur dagur — nýtt myndband
Sveigjanleikinn skiptir mestu máli 
Bleikar kræsingar í morgunkaffinu hjá Vinnslustöðinni
Rúmlega 1,6 milljónir til góðra málefna eftir metkvöld í Höllinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.