Framtíð skólalóðanna
Í tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ segir að loksins sé komin sameiginleg niðurstaða varðandi skólalóðirnar við Barnaskólann og Hamarsskóla/Víkina sem allir eru sáttir við. Landslagsarkitektar frá Landmark hafa unnið tillögur að lagfæringum og hluta endurgerð lóða þar sem fram kemur heildarskipulag og tillögur um leiktæki sem passa aðstæðum. Reynt er að mæta öllum þeim tillögum og hugmyndum sem hafa komið fram í gegnum tíðina frá starfsfólki skóla, nemendum, foreldrum o.fl. Skólalóðirnar þjóna ekki síður sem leiksvæði eftir skólatíma. Stjórnendur GRV hafa samþykkt tillögurnar fyrir sitt leyti sem og Fræðsluráð Vestmannaeyja og því ekkert til fyrirstöðu að hefja vinnuna. Um er að ræða verkefni til næstu 3 – 4 ára. Vestmannaeyjabær fagnar þessum niðurstöðum og mun hefja strax vinnu við kostnaðarmat og verkáætlun. Markmiðið er að hefja jafnvel framkvæmdir strax í sumar við einstaka þætti.

Nýjustu fréttir

„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Hugrekki er oft bara að halda áfram
Skólanum slitið á Stakkó
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir með 9,0 í meðaleinkunn
Íris ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra ára
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.