Framtíðarsýn
Georg Eiður Arnarson skrifar
Georg Eiður Arnarson.

​Ég var að renna yfir skýrslu Jóhanns Halldórssonar um hugsanlega uppbyggingu á stórskipaviðlegukanti á Eiðinu og hafði bara gaman af, vonandi verður málið að veruleika, en þetta rifjaði upp fyrir mér ansi margar greinar sem ég hef skrifað í gegnum árin og meðal annars fyrsta framboðið mitt, en ég tók þátt í framboði sem hét Frjálslyndir og óháðir fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 2006 og settum við sem lykil baráttumál uppbyggingu á stórskipaviðlegukanti á Eiðinu. Bæði Vestmannaeyjalistinn (forveri Eyjalistans) og Sjálfstæðisflokkurinn tóku málið upp og bjuggu til gríðarlega flottar auglýsingar um þetta mikilvæga mál, unni svo kosningarnar og gerðu ekkert meira í málinu.

En vissulega hefur þetta mál verið lengi á döfinni og mikilvægi þess oft rætt, en í skýrslunni kemur m.a. fram að hin mikla uppbygging á hinu gríðar mikilvæga fyrirtæki, Laxey, fyrir okkur Eyjamenn spili þarna inn í, en einnig er nefnt (og tengi ég það við grein sem ég skrifaði í fyrrasumar) að þarna sé komin flóttaleið í einhvers konar náttúruvá. Augljóslega hefur stærsta áskorunin í þessu verkefni verið að finna efni í það, en mér skilst að það sé komið vel á veg en mér langar svona að gefnu tilefni að tengja þetta mál við annað mikilvægt mál fyrir okkur Eyjamenn.

Að undanförnu hafa borist fregnir af því að nú sé hafinn undirbúningur að stofnun félags, bæði hér í Eyjum og uppi á landi, sem hefur það að markmiði að undirbúa og fjármagna gerð gangna á milli lands og Eyja.

Augljóslega kæmi alveg gríðarlegt efni úr slíkum göngum og myndi klárlega meira en vel duga fyrir uppfyllingu samhliða uppbyggingu á viðlegukanti fyrir Eiðinu þar sem t.d. hugsanlega væri hægt að byggja þá upp tanka fyrir geymslu á fóðri fyrir laxeldið í Laxey.

Ég hef reyndar marg oft fjallað um þau tækifæri sem hér myndu skapast með göngum, en mig langar að koma hér með 2 mikilvæg atriði.

Í fyrsta lagi þá vita það held ég allir að nú hefur Vinnslustöðin sagt upp öllum starfsmönnum í Leo fresh, en á sama tíma er Vinnslustöðin meirihluta eigandi af fiskvinnslufyrirtæki inni í Hafnarfirði, þangað sem öll ýsa sem skip fyrirtækisins koma með að landi er send til og unnin í svokallaðan flugfisk, en það gætum við að sjálfsögðu gert hér í Eyjum ef við hefðum göng.
Í öðru lagi, þá er þessi gríðarlega mikla uppbygging hjá þeim í Laxey, sem klárlega stefnir í að verða stærsta og öflugusta fyrirtækið í Vestmannaeyjum innan ekki svo langs tíma. Þar væri líka tækifæri á því að vinna hugsanlega lax bæði sem ferstan eða jafnvel í neytendaumbúðir og koma því þá líka inn á þennan svokallaða flugfiskmarkað.

Tækifærin með göngum eru því margvísleg.

Ég skora því á alla þá sem ætla að bjóða sig fram fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor að hafa þetta í huga, því þetta varðar ekki bara framtíðina, því þetta er líka ákveðin framtíðarsýn.

Góðar stundir.

 

Georg Eiður Arnarson

Nýjustu fréttir

Gagnrýnir orðræðu stjórnmálamanna
„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Hjónin Rósa og Ágúst deila áhuga á handverki
Eyjakonur sækja Stjörnuna heim í mikilvægum leik
45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.