Framtíðarþróun ferðamála á Suðurlandi
Á fimmtudaginn fyrir viku síðan var opinn íbúafundur um framtíðarþróun ferðamála á Suðurlandi. �?ar gafst íbúum og hagsmunaaðilum færi á að koma hugleiðingum sínum á framfæri og eiga samtal um ferðaþjónustuna og kynnast vinnu við stefnumótun og framtíðarsýn fyrir ferðaþjónustu á Suðurlandi sem hefur verið í gangi frá síðasta hausti.
Vestmannaeyjabær hefur verið þátttakandi í Áfangastaðaáætlun DMP (Destination Management Plan) í ferðaþjónustu. Hildur Sólveig Sigurðardóttir, fulltrúi í vinnuhóp um áfangastaðaáætlun DMP á Suðurlandi, sagði að Áfangastaðaáætlunin væri fyrst og fremst hugsuð til að ná fram heildstæðri stefnu í ferðaþjónustu fyrir svæðið. �?annig væri með starfinu tengdir saman hagsmunaaðilar ferðaþjónustu og raddir þeirra sem þjónustuna snerta fá að heyrast. �??Með vinnunni er verið að skerpa á því hvar við erum að standa okkur vel, hvað þarf að bæta og hvaða leiðir er hægt að fara til að ná fram þeim markmiðum sem við setjum okkur. Með þessari vinnu er verið að tryggja að svæðin séu að róa í sömu átt. �?rátt fyrir að ógnanir og tækifæri svæðanna séu ólík þá verður til aukinn skilningur á sérstöðu svæðanna og með þessari vinnu fá yfirvöld svart á hvítu hvaða heildrænu stefnu svæðin vilja taka í sameiningu og hvaða þætti þarf að bæta og breyta til að við komumst á réttan kjöl.�??
Niðurstöðurnar munu koma ríki, sveitarfélögum og rekstraraðilum í ferðaþjónustu vel. �??Með þessari vinnu skapast grundvöllur og væntanlega nokkurs konar leiðarvísir til sóknar í ferðaþjónustu fyrir framtíðina,�?? sagði Hildur Sólveig.

Nýjustu fréttir

Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.