Framúrskarandi fyrirtæki í Eyjum 2025 
Þröstur, Jón Viðar, Bjarki, Bjarni Ólafur og Heiða tóku við viðurkenningunni fyrir sín fyrirtæki. Myndir: Credit Info.

„Það skiptir okkur hjá Creditinfo miklu máli að geta gert Framúrskarandi fyrirtækjum hátt undir höfði. Þetta eru stöðugustu fyrirtæki landsins sem leggja grunninn að kröftugu hagkerfi okkar Íslendinga. Það er einkar ánægjulegt að sjá hvað Vestmannaeyjar búa vel þegar kemur að öflugum fulltrúum á listanum í ár,” segir Hrefna Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi. 

Alls fengu 16 fyrirtæki frá Vestmannaeyjum viðurkenningu Creditinfo sem framúrskarandi fyrirtæki 2025 sem afhentar voru við athöfn þann 31. október sl. Úttekt Creditinfo á rekstrarárangri íslenskra fyrirtækja fyrir árið 2025 sýnir að aðeins 1155 fyrirtæki, eða um 2,5% allra fyrirtækja á Íslandi, uppfylla þau ströngu skilyrði sem þarf að uppfylla til að hljóta viðurkenninguna Framúrskarandi fyrirtæki. Um er að ræða eitt virtasta rekstrarvottorð landsins sem byggir á fjölmörgum mælikvörðum um styrk, stöðugleika og áreiðanleika í rekstri.

Hrefna Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi.

Þetta kemur fram á heimasíðu Creditinfo. Til að komast á listann þurfa fyrirtæki að standast strangar kröfur á borð við jákvæða afkomu þrjú ár í röð, góðan rekstrarhagnað (EBIT), eiginfjárhlutfall sem er að minnsta kosti 20% og að rekstrartekjur fari ekki undir ákveðin mörk. Þá þurfa eignir að vera yfir 120 milljónum króna árin 2023 til 2024 og ekki undir 110 milljónum árið 2022.

Auk þess þurfa fyrirtæki að vera í lánshæfisflokki 1 til 3 hjá Creditinfo, hafa skilað ársreikningum innan lögboðinna tímamarka og vera virk samkvæmt skilgreiningu Creditinfo. Fyrirtæki með rekstrartekjur yfir 2 milljörðum króna þurfa jafnframt að fylla út sérstakan sjálfbærnisspurningalista, sem endurspeglar aukna áherslu á samfélagslega ábyrgð og sjálfbæran rekstur.

„Listinn yfir Framúrskarandi fyrirtæki er orðinn lykilmælikvarði á áreiðanleika í viðskiptum og er mikið notaður af bæði fyrirtækjum og fjárfestum sem vilja meta stöðugleika og rekstrarhæfni samstarfsaðila. Í ár endurspeglar hann enn á ný þau fyrirtæki sem hafa sýnt fram á stöðugan rekstur, sterka stöðu og fagleg vinnubrögð á óvissutímum,“ segir á heimasíðu Creditinfo.

Skilyrðin sem lögð eru til grundvallar eru meðal annars eftirfarandi:

  • Jákvætt rekstrarárangur og jákvæð ársniðurstaða 2022–2024
  • Rekstrarhagnaður (EBIT) > 0 á sama tímabili
  • Rekstrartekjur a.m.k. 60 m.kr. árin 2023–2024 og 55 m.kr. árið 2022
  • Eiginfjárhlutfall minnst 20% 2022–2024
  • Eignir yfir 120 m.kr. árin 2023–2024 og yfir 110 m.kr. árið 2022
  • Framkvæmdastjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK

 

Framúrskarandi fyrirtæki í Vestmannaeyjum 2025

  • Bergur-Huginn ehf.
  • Bylgja VE 75 ehf.
  • Einsi Kaldi Veisluþjónusta ehf.
  • Eyjablikk ehf.
  • Faxi ehf.
  • Frár ehf.
  • HS Vélaverk ehf.
  • Ísfélag hf.
  • Karl Kristmanns umboðs- og heildverslun ehf.
  • Kvika ehf. útgerð.
  • Miðstöðin Vestmannaeyjum ehf.
  • Narfi ehf.
  • Ós ehf.
  • SBS Asia ltd ehf.
  • Skipalyftan ehf.
  • VSV Seafood Iceland ehf.

Nýjustu fréttir

„60 milljónir eru þeim ofviða“
Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Andrea Jacobsen til liðs við ÍBV

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.