Fréttatilkynning - Mugison verður í Höllinni í Eyjum 19. maí
Mugison og hljómsveit spiluðu á alltof fáum tónleikum þegar þau fylgdu eftir síðustu plötu kappans, Enjoy! fyrir síðustu jól.
�?að var mál manna og kvenna að hljómsveitin hafi aldrei hljómað betur, Rósa Sveinsdóttir bættist í hópinn í fyrra og spilar á saxafón. �?á hafa þau Tobbi og Rósa tekið uppá því að radda einsog englakór í fallegu lögunum – og Addi og Guðni halda ballestinni einsog sannir skriðdrekar.
Mugison er þekktur fyrir kraftmikla og einlæga sviðsframkomu – allt lagt í sölurnar á hverjum einustu tónleikum.
�?etta er einstakt tækifæri til þess að upplifa tónlist sem spannar allan tilfinningaskalann.
Ekki missa af þessu!
Tónleikarnir í Höllinni í Eyjum verða föstudagskvöldið 19.maí. Miðasala er þegar hafin inn á tix.is. Einnig verður forsala í Tvistinum þegar nær dregur og verður það sérstaklega auglýst.
Verð í forsölu er 4.500,- (á tix.is og í Tvistinum) en kr. 4.900,- við hurð.

Nýjustu fréttir

ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Lækkandi ölduhæð og Álfsnesið á leiðinni
Spurt og svarað: Erlingur frá Eyjalistanum
Sandra náði áfanga með íslenska landsliðinu
Með fullfermi eftir örstutta túra
Friðrik Dór mætir á Þjóðhátíð
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.