Frístundastyrkur Vestmannaeyjabæjar

Niðurgreiðsla þátttökugjalda barna 2 – 18 ára í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi í Vestmannaeyjum / Frístundastyrkur

Styrkurinn er að upphæð kr. 35.000 og gildir frá 1. janúar 2020 – 31.desember 2020.

 

Úthlutunarreglur Frístundastyrks Vestmannaeyjabæjar.

Eftirfarandi aðilar eru skráðir samstarfsaðilar við Vestmannaeyjabæ vegna frístundastyrks:

  • ÍBV – Íþróttafélag
  • Golfklúbbur Vestmannaeyja
  • Fimleikafélagið Rán
  • Tónlistarskóli Vestmannaeyja
  • Skátafélagið Faxi
  • Sundfélag Vestmannaeyja
  • Karatefélag Vestmannaeyja
  • Hugarfrelsi ehf.
  • Hressó – skipulögð unglinganámskeið
  • Peers eyjar
  • Sumarfjör

Frá árinu 2020 mun Vestmannaeyjabær í samstarfi við samstarfsaðila notast við rafrænt greiðslu- og skráningarkerfi (NORA frá Greiðslumiðlun) sem heldur utan um alla umsýslu frístundastyrksins. Fyrirkomulagið er með því sniði að foreldrar/forráðamenn fara inn á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar eða þess samstarfsaðila sem tilgreindur er hér að ofan þar sem skrá á barn/börn til þátttöku. Á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar eða félaganna er/verður hlekkur inná skráningarsíðu þar sem foreldrar/forráðamenn skrá iðkendur. Í lok skráningar- og greiðsluferlisins geta foreldrar/forráðamenn valið að nota frístundastyrkinn frá Vestmannaeyjabæ. Með tilkomu rafræns fyrirkomulags er hægt að skipta frístundastyrknum niður á milli félaga/deilda/námskeiða.

Bein slóð: http://vestmannaeyjar.is/is/page/fristundastyrkur

 

Vestmannaeyjar.is

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.