Funduðu saman í fyrsta sinn
Stjórnarfólk íþróttahéraða á Suðurlandi og framkvæmdastjóri Héraðssambandsins Skarphéðins fundaði í Eyjum. Ljósmynd/umfi.is

Stjórnarfólk íþróttahéraða á Suðurlandi og framkvæmdastjóri Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK) fundaði í fyrsta sinn öll saman á föstudag í síðustu viku. Fundað var í Vestmannaeyjum. Fram kemur í frétt á umfi.is að markmiðið með fundinum hafi verið að byggja brú á milli sambandanna. Rakel Magnúsdóttir segir ferðina hafa heppnast frábærlega.

„Þetta var fyrsti samráðsfundur íþróttahéraða á okkar svæði og alveg frábærlega vel heppnuð Eyjaferð. Tilgangurinn var að byggja brýr á milli hèraða og fèlaga og mynda dýrmæt tengsl. Það tókst,“ segir Rakel sem er annar tveggja svæðisfulltrúa íþróttahreyfingarinnar á Suðurlandi.

Svæðisfulltrúunum um allt land var í fyrra falið að vinna áfram með hugmynd um nýtingu fjármagns og kom upp sú hugmynd að formenn og stjórnir íþróttahéraða myndum funda saman. Fyrirhugað var í fyrra að formenn á Suðurlandi heimsæktu fulltrúa Íþróttabandalags Vestmannaeyja (ÍBV) á síðasta ári. Fresta þurfti ferðinni vegna veðurs. Ferðin var loksins farin á föstudaginn í síðustu viku.

Rakel segir markmið ferðarinnar hafa öðru fremur falist í því að hittast og ræða saman um störf stjórna íþróttahéraðanna, gefa og þiggja ráð og búa til dýrmæt tengsl. Dagskráin var afslöppuð og óformleg en  fyrirhuguð nýting á sameiginlegu fjármagni sem ætluð er inn í hreyfinguna var í brennidepli.

„Við fengum útsýnisferð og kynningu frá ÍBV og skoðuðum meðal annars Gullberg, sem er glæsileg lyftingaaðstaða í Týsheimilinu í Eyjum, Glófaxa, sem er nýja félagsaðstaða fyrir yngri iðkendur, en þar fá þau tækifæri á að nýta frítíma sinn í kringum æfingar og glæsilega búningsaðstöðu og nýjan gervigrasvöll á Hásteinsvelli. Þá fengum við einnig sýnisferð um Golfvöllinn og glæsilegt klúbbhúsið sem hefur flottan golfhermi, sem bæði ungir sem aldnir nýta allan ársins hring,“ heldur Rakel áfram.

Ferðinni lauk með sameiginlegum kvöldverði á Einsa Kalda þannig að enginn fór svangur heim. Rakel segir ferðina hafa heppnast vel í alla staði enda hafi samtalið opnað á frekari samskipti milli stjórnarmanna í framtíðinni.

Næsti hittingur verður á sambandsþingi UMFÍ í október en það er fyrsta UMFÍ þing sem ÍBV sækir eftir að sambandið varð aðili að UMFÍ fyrr á árinu.

Rakel bendir á að það sé svo gaman að geta unnið saman og pælt í mörgu í þá veru. Á meðal hugmyndanna sé að panta langferðabíl og að allur hópurinn af Suðurlandi verði samferða á sambandsþing UMFÍ í Stykkishólmi í október.

Fleiri myndir frá Eyjaferðinni má sjá hér.

Nýjustu fréttir

Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.