Fyrirlestur um fjölbreytileikann, ég er unik

Viska, Fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja og Blár apríl, styrktafélag barna með einhverfu, bjóða upp á frían aðgang að fyrirlestri um heim einhverfunnar með Aðalheiði Sigurðardóttur. Fyrirlesturinn er sjónrænn, hvetjandi og hlý upplifun fyrir alla.

Erindið fer fram á Zoom 4. maí kl. 17:00 og stendur yfir í um klukkutíma. Þátttakendur þurfa að skrá sig á erindið hjá Visku í síma 4880100 eða á viska@viskave.is Fram þarf að koma nafn, kennitala, netfang og stéttarfélag.

Aðalheiður er stofnandi verkefnisins Ég er unik. Hún hefur haldið fyrirlestra í fleiri ár, bæði á Íslandi og í Noregi um sitt ferðalag sem móðir barns á einhverfurófi. Hún er núna með nýjan og öðruvísi fræðslufyrirlestur um einhverfu. Í honum fer Aðalheiður með ykkur í ferðalag inn í heim einhverfunnar og leyfir ykkur að reyna á eigin líkama hvernig annars konar skynjun getur verið áskorun í dagsdaglegu lífi. Við fáum ekki aðeins fræðslu um hvað er einhverfa og hvernig einkennin birtast, heldur einnig hvers vegna. Hún endar svo fyrirlesturinn sinn á dýrmætum ráðum um hvernig við getum hjálpað

Nýjustu fréttir

Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.