Fyrirmyndadagurinn er í næstu viku
Fyrirmyndardagurinn verður haldin föstudaginn 24. nóvember, þetta er dagur þar sem fyrirtæki/stofnanir bjóða atvinnuleitendum með skerta starfsgetu að fylgja starfsmanni eftir í sínu fyrirtæki eða stofnun í einn dag eða hluta úr degi. Með því fá atvinnuleitendur tækifæri á að kynna sér fjölbreytt starfsumhverfi og forsvarsmenn fyrirtækja fá að kynnast styrkleikum hvers þátttakanda.
Fyrirmyndin að deginum kemur frá Atvinnu með stuðningi á Írlandi en þar hefur Job shadow dagurinn verið haldinn frá árinu 2008 og hefur verkefnið opnað möguleika fatlaðs fólks til fjölbreyttari atvinnuþátttöku.
Starfsmenn frá Atvinnu með stuðningi/Vinnumálastofnun heimsóttu Írland sumarið 2013 til að kynna sér verkefnið eftir að hafa hlotið styrk til mannaskiptaverkefnis í Leonardo hluta Menntaáætlunar ESB.
�?að eru tvo fyrirtæki í Vestmannaeyjum sem taka þátt í ár og munu tveir starfsmenn hjá hæfingarstöðinni Hamri mæta til vinnu þar. Annarsvegar er það Eyjabakarí og hinsvegar prentsmiðjan Eyrún.
Frábært framtak sem fyrirtæki í Vestmananeyjum gætu mörg hver skoðað.

Nýjustu fréttir

Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Einn túr eftir fyrir sumarstopp
NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð
ÍBV tekur á móti Val í kvöld
Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa
Óboðnir gestir undir yfirborðinu
Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.