Herjólfur siglir fyrri ferð dagsins til Þorlákshafnar þar sem ófært er til Landeyjahafnar vegna aðstæðna þar. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00. Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45.
Ferðir kl. 08:15, 09:30, 12:00, 13:15, 14:30 hafa verið felldar niður. Hvað varðar siglingar fyrir seinnipartinn í dag, verður gefin út tilkynning kl. 15:00, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.
Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni. Farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað. Strætó fer frá Mjódd kl. 09:00.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst