Fyrsta hraðhleðslustöðin í Vestmannaeyjum

Fyrsta hraðhleðslustöðin fyrir rafmagnsbíla var opnuð í gær við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Einnig var sett upp hleðslustöð við Ráðhús og Bókasafn. Með þessu þarf vonandi enginn að vera með hleðslukvíða við komu til Vestmannaeyja enda bærinn kjörinn fyrir notkun rafmagnsbíla og leiðin á milli Reykjavíkur og Landeyjahafnar nokkuð greiðfær fyrir flesta rafbílaeigendur.

Hraðhleðslan við Íþróttamiðstöð er 50 kW og getur einn hlaðið í einu en stöðin við Ráðhúsið er 22 kW og geta tveir hlaðið í einu. Hraðhleðslustöðin við Íþróttamiðstöðina er sett upp til bráðabirgðar þar til endanleg staðsetning er fundin. Nánar tiltekið er staðsetningin á suð austur hluta bílastæðisins.

Hleðslustöðvarnar eru settar upp af Orku Náttúrunnar í samstarfi við Vestmannaeyjabæ. Til þess að hlaða þarf því að hafa ON appið eða hleðslulykil frá Orku Náttúrunnar.

Nýjustu fréttir

„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.