Guðrún Erlingsdóttir, fyrrum bæjarfulltrúi, varaþingmaður og formaður Verslunarmannafélags Vestmannaeyja og síðar starfsmaður VR í Eyjum hefur ekki setið auðum höndum eftir að hún og Gylfi Sigurðsson, maður hennar fluttu héðan árið 2013. Í vor lauk hún BA prófi í norsku og atvinnulífsfræði frá Háskóla Íslands. Á laugardaginn stefnir hún svo á tónleika í Salnum í Kópavogi þar sem Kór Ástjarnarkirkju flytur tónlist eftir Guðrúnu ásamt hljómsveit og einsöngvurum. Sjálf er Guðrún í hópi einsöngvara en auk hennar syngja Áslaug Fjóla Magnúsdóttir, Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir, Kristjana �?órey �?lafsdóttir, Kolbrún Shalini Árnadóttir og Svava Halldórsdóttir. Hljómsveitina skipa Matthías Baldursson kórstjórn og píanó, Friðrik Karlsson gítar, �?orbergur �?lafsson slagverk og �?órir Rúnar Geirsson bassi. �??Við erum fjögur frá Eyjum í kórnum, mágkona mín Bjartey Sigurðardóttir, Kristjana �?órey �?lafsdóttir og S. Árni Ingimarsson,�?? sagði Guðrún. �??Kórstjórinn okkar Matthías útsetur lögin en hann er ættaður úr Eyjum. �?að eru fleiri í kórnum með tengingu til Eyja.�?? Ástjarnarkirkja er á Völlunum í Hafnarfirði og segir Guðrún að kórinn njóti vinsælda fyrir gospelsöng sinn og léttleika. �??�?að verða flutt 15 lög eftir mig og ég hef samið bæði lögin og textana. Svo tökum við fjögur vinsæl erlend gospellög þar sem textarnir eru í minni þýðingu.�?? Flest lögin eru með trúarlegum textum og önnur eru á persónulegum nótum. m.a. lag sem hún samdi um Noregsferðina 1973 og
flutti í Höllinni með Blítt og létt 2013. Sjálf var hún ein af um 1000 krökkum frá Vestmannaeyjum sem fóru til Noregs í tvær vikur gossumarið 1973. Um þessa ferð fjallar BA ritgerð hennar og er á norsku. �?rettán af lögunum eru samin í Eyjum og tvö á höfuð- borgarsvæðinu þar af kom annað lagið eftir heimsókn til Eyja. �??Sköpunarkraftinn fæ ég úr náttúrunni heima. Við Gylfi stöndum fyrir þessum tónleikum og ákváðum að nota tækifærið til þess að fagna BA prófinu mínu úr Háskólanum með þessum hætti. Fyrsta lagið samdi ég 2011 og kom það eins og þruma úr heiðskíru lofti, ég tel lögin mín séu frá Guði komin, og ég er eins konar kanall og er stolt af því að hafa hlýtt og þorað að koma þessu á framfæri. �?g byrjaði á því að flytja lögin mín í Aglow í Eyjum 2011. �?g lærði einn vetur á gítar þegar ég var tólf ára og kann vinnukonugrip en kann ekki að skrifa nótur. �?g get hljómasett lögin mín en svo þarf ég að syngja þau fyrir þá sem meira kunna svo hægt sé að skrifa við þau nótur.�?? �?arna sýnir Guðrún á sér nýja hlið, bæði er það tónlistarsköpunin og svo hvað trúin skipar stóran sess í lífi hennar. �??Já, lífið tekur stundum óvæntar stefnur �?mar, ekki allt sem sýnist og konur leyna á sér. �?ar sem Guð gaf mér þessa náðargjöf þá get ég ekki selt inn á þessa tónleika, þetta verður mitt þakklæti fyrir gjöfina. Tónleikarnir verða teknir upp bæði hljóð og mynd og ég veit að mér verður sýnd leið til þess að gefa tónlistina út í fyllingu tímans. �?g veit að lögin mín og textarnir hafa snert við fólki sem er markmiðið,�?? sagði Guðrún að endingu.
Tónleikarnir verða í Salnum í Kópavogi í dag kl. 16.00. Allir er velkomnir og frítt er inn, Guðrún vonast til þess að sem flestir Eyjamenn brottfluttir og búandi í Eyjum mæti á tónleikana.