Fyrsta makrílfarmur sumarsins var landað í dag og var það Guðrún Þorkelsdóttir SU sem kom með hann. En Huginn er með Guðrúnu á leigu á meðan breytingar eru gerðar á skipi þeirra úti í Póllandi.
Guðmundur Ingi Guðmundsson skipstjóri sagði, í samtali við mbl.is að þeir hefðu veitt 160 tonn af makríl suður af Vestmannaeyjum í þremur hollum. „Við keyrðum bara á gamlar slóðir sem við þekkjum. Þar var einhver fiskur. Við reyndar sigldum að austan og prófuðum eitt hal á leiðinni og fengum fisk þar.“
Makríllinn fer til vinnslu í Vinnslustöðinni þar sem vinnsla er að hefjast.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.