Fyrsta pysja ársins fundin
Screenshot
Systkinin Daníel Andri og Hrafnhildur með fyrstu pysju ársins, sem þau fundu á pallinum hjá ömmu sinni og afa á Illugagötu. Pysjan vó 280 grömm. Ljósmynd/Pysjueftirlitið.

Pysjutíminn í Vestmannaeyjum er formlega hafinn en fyrsta pysja ársins fannst á palli við heimili á Illugagötu.

Það voru systkinin Daníel Andri og Hrafnhildur sem fundu pysjuna á pallinum hjá ömmu sinni og afa. Pysjan reyndist 280 grömm að þyngd.

Pysjueftirlitið hvetur alla sem finna pysjur til að skrá þær á lundi.is svo hægt sé að fylgjast með fjölda þeirra. Ekki er skylt að vigta pysjurnar en þeir sem hafa tök á því eru hvattir til að skrá þyngdina.

Pysjutíminn er jafnan skemmtilegur en annasamur tími í Eyjum þegar lundapysjurnar yfirgefa holur sínar og halda til sjávar. Sumar villast inn í bæinn þar sem vaskir pysjueftirlitsmenn koma þeim til bjargar.

Nýjustu fréttir

Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV 
Hekla bætti eigið met og varð efst kvenna
Vilja taka upp daggjald í Frístund
Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.