Fyrsta tap ÍBV í sumar kom gegn FH
Úr leik ÍBV og Þór/KA á Hásteinsvelli. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í fótbolta tapaði 3-0 gegn FH, í fimmtu umferð Bestu deildar kvenna, í Kaplakrika í dag. Var þetta fyrsti tapleikur Eyjakvenna í sumar en þær hafa farið frábærlega af stað í deildinni.

Eyjakonur byrjuðu leikinn nokkuð vel og voru nokkrum sinnum nálægt því að koma sér í dauðafæri með góðri pressu á síðasta þriðjungi. Það voru hins vegar FH konur sem náðu forystunni á 11. mínútu leiksins þegar Birna Kristín Björnsdóttir skoraði af stuttu færi. 

Eyjakonur urðu fyrir miklu áfalli í fyrri hálfleik. Fyrst þegar markadrottningin Allison Grace Lowrey fór meidd af velli eftir 25 mínútna leik og tíu mínútum síðar fór Embla Harðardóttir sárþjáð af velli og var borin útaf. Eyjakonur hafa verið afar óheppnar með meiðsli í byrjun sumars.

Ekki voru mikið um færi það sem eftir lifði hálfleiks og því staðan 1-0 í hálfleik.

FH konur voru sterkara liðið í síðari hálfleik og komust í 2-0 á 70. mínútu þegar Ída Marín Hermannsdóttir skoraði af vítapunktinum. Helena Maree Errington skoraði svo þriðja mark FH sjö mínútum fyrir leikslok þegar hún potaði boltanum í markið fram hjá Guðnýju Geirsdóttur, markverði ÍBV. Lokatölur leiksins 3-0.

ÍBV er, eftir fimm leiki, í öðru sæti deildarinnar með tólf stig á meðan FH er komið með tíu stig, í þriðja sæti. 

ÍBV stelpurnar taka næst á móti Grindavík/Njarðvík á Hásteinsvelli, mánudaginn 25. maí kl. 16:00.

Nýjustu fréttir

„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Hugrekki er oft bara að halda áfram
Skólanum slitið á Stakkó
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir með 9,0 í meðaleinkunn
Íris ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra ára
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.