Kvennalið ÍBV í handboltanum tapaði fyrir Fram á útivelli í dag 27:23, eftir að hafa verið yfir í hálfleik 11:13. Bæði lið höfðu unnið fyrstu tvo leiki sína, eins og Grótta en heil umferð fer fram í dag í Olísdeildinni og lýkur síðasta leiknum um hálf sex. Mörk ÍBV gerðu þær Vera Lopes 7, Díana Dögg Magnúsdóttir 6, Telma Amado 4, Ester �?skarsdóttir 3, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 2, Elína Anna Baldursdóttir 1. Næsti leikur ÍBV er eftir rúma viku en sunnudaginn 5. október tekur liðið á móti FH í Eyjum.