Fyrsti kynningarfundur frambjóðenda VG

Fyrsti kynningarfundur kjörstjórnar VG – Suðurkjödæmi með frambjóðendum verður í kvöld kl. 20 – 21.30. Fundurinn verður rafrænn. Upplýsingar um tengil á fundinn er að finna á heimasíðu forvalsins, https://sudur.vg.is/ og á www.vg.is

Átta gefa kost á sér í fimm efstu sætin í forvali VG í Suðurkjördæmi.  Almar Sigurðsson, ferðaþjónustubóndi og formaður svæðisfélags Vg í Árnessýslu, Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, bóndi og sveitarstjórnarmaður í Skaftárhreppi, Hólmfríður Árnadóttir, skólastjóri og formaður svæðisfélags Vg á Suðurnesjum, Kolbeinn Óttarsson Proppé, alþingismaður, Róbert Marshall, leiðsögumaður, bjóða sig fram í fyrsta sæti.

Að auki bjóða Sigrún Birna Steinarsdóttir, háskólanemi og formaður Ungra Vinstri grænna sig fram í 2. – 3. sæti, Helga Tryggvadóttir náms- og starfsráðgjafi í 2. – 5.  sæti og Anna Jóna Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur í 3. – 5. sæti.  

F.h kjöstjórnar
Sæmundur Helgason
formaður kjörnefndar, VG – Suðurkjördæmi 

Nýjustu fréttir

Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.