Fyrstur undir 30 mínútum

Hlauparinn og eyjamaðurinn Hlynur Andrésson bætti 36 ára gamalt Íslandsmet í gær þegar hann varð fyrsti Íslendingurinn til þess að fara 10 kílómetra götuhlaup á undir 30 mínútum.

Hlynur var meðal þátttakenda í Parrelloop hlaupinu í Hollandi og kom 27. í mark á tímanum 29:49 mínútum. Hann bætti þar með Íslandsmet Jóns Diðrikssonar frá því árið 1983 sem var 30:11 mínútur.

Þetta er hins vegar ekki í fyrsta skipti sem Hlynur fer þessa vegalengd á innan við hálftíma því hann á Íslandsmetið í 10 kílómetrum á hlaupabraut, 29:20,91. Hlynur er ríkjandi Íslandsmethafi í 5km hlaupi og 3000m hindrunarhlaupi ásamt 10km á hlaupabraut og nú í 10km götuhlaupi.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.