Gæti orðið vart við gasmengun í Eyjum
IMG_4268
Eldgos á Reykjanesskaga séð frá Vestmannaeyjum. Eyjar.net/Tryggvi Már Sæmundsson

Virkni eldgossins á Reykjanesi virðist nokkuð stöðug og áfram eru virk gosop á sömu stöðum og í gær. Hraun rennur frá gígunum í suður ofan á hrauni sem rann á fyrstu dögum gossins. Lítil sem engin hreyfing hefur mælst á hraunjöðrum nærri Suðurstrandarvegi og Svartsengi. Jarðskjálftavirkni síðan eldgosið hófst á laugardagskvöld hefur verið minniháttar. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.

ÞAr segir jafnframt að veðurspá sé vaxandi suðaustanátt í dag, 13-20 m/s síðdegis. Gasmengun berst til norðvesturs, og gæti hennar orðið vart í Reykjanesbæ, nálægum byggðarlögum og líka í Svartsengi. Lægir í kvöld og þá gæti orðið vart við gasmengunnar nálægt gosstöðvum eins og Svartsengi og Grindavík. Svo snýst í norðlæga átt seint í kvöld og þá berst gasmengun til suðurs til Grindavíkur. Á morgun (fimmtudag) er norðvestan og vestan 8-15 m/s og berst gasmengun til austurs og suðausturs og gæti hennar orðið vart á Suðurlandi eins og í Þorlakshöfn eða í Vestmannaeyjum. Þann 17. mars var útstreymi SO2 frá eldgosinu mælt allt að 50 kg/s, en frumniðurstöður nýrri mælinga benda til þess að dregið hafi verulega úr gasútstreyminu síðan þá. Gasdreifingarspá má finna hér.

Spá veðurvaktar um gasdreifingu

Suðaustanátt 13-20 m/s. Gasmengun berst til norðvesturs, og gæti hennar orðið vart í Reykjanesbæ og nálægum byggðarlögum og líka í Svartsengi. Lægir í kvöld og þá gæti vart við gasmengunnar nálægt gosstöðvum eins og Svartsengi og Gríndavík. Svo snýst í norðlæga átt seint í kvöld og þá berst gasmengun til suðurs til Gríndavíkur.
Á morgun (fimmtudag) er norðvestan og vestan 8-15 m/s og berst gasmengun til austurs og suðausturs og gæti hennar orðið vart á Suðurlandi eins og í Þorlákshöfn eða í Vestmannaeyjum.
Spá gerð: 20.03.2024 15:30. Gildir til: 21.03.2024 23:59.

gasmengun_spa_200324_min

Nýjustu fréttir

Eyjamenn áberandi meðal styrkþega Terra
Hjörtur Leó sigurvegari eldri flokks á Þjóðhátíð
Nýtt dýpkunartímabil að hefjast í Landeyjahöfn
Íþróttamaður mánaðarins – Sigurmundur Gísli Unnarsson
Ný skólalóð Sóla formlega tekin í notkun
Engin niðurstaða um frekari fjármögnun ríkisins á NSL-4
Herjólfur siglir eina ferð fyrir hádegi
Sterkur lokakafli skilaði ÍBV sigri gegn Selfossi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.