Gagnrýnir orðræðu stjórnmálamanna
Ísfélagið skilaði góðri afkomu á fyrsta ársfjórðungi ársins 2026. Í nýju uppgjöri félagsins fer Stefán Friðriksson forstjóri yfir reksturinn og svarar jafnframt gagnrýni á hagnað og fjárfestingar sjávarútvegsfyrirtækja.

Stefán Friðriksson, forstjóri Ísfélagsins, notar tækifærið í uppgjöri félagsins fyrir fyrsta ársfjórðung til að svara gagnrýni sem beinst hefur að hagnaði sjávarútvegsfyrirtækja og fjárfestingum þeirra utan greinarinnar.

Í yfirlýsingu sinni vísar Stefán til nýrrar skýrslu Hagfræðistofnunar um fjárfestingar sjávarútvegsfyrirtækja og segir umræðuna um hagnað og arðgreiðslur greinarinnar oft einkennast af rangfærslum.

„Orðræða sumra þeirra sem standa á hinu pólitíska sviði, bæði aðal- og aukaleikara, um hagnað og arðgreiðslur sjávarútvegsfyrirtækja og fullyrðingar um leyndarhyggju í þessum efnum eru einfaldlega rangar,“ segir hann.

Stefán bendir á að hagnaður sé forsenda áframhaldandi fjárfestinga og uppbyggingar og að arðgreiðslur til hluthafa séu eðlilegt endurgjald fyrir það fjármagn sem þeir leggi fyrirtækjum til. Hann segir jafnframt að Ísfélagið hafi um árabil gert ítarlega grein fyrir umsvifum sínum í atvinnulífinu, bæði í ársreikningum, á heimasíðu félagsins og sem skráð félag á hlutabréfamarkaði.

Forstjórinn varar einnig við áhrifum hækkandi veiðigjalda og kolefnisgjalda og telur að slík skattheimta geti til lengri tíma dregið úr samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs og minnkað hvata til fjárfestinga.

Nýjustu fréttir

Yfir þúsund pysjur skráðar
Fjölmenni á opnum fundi Áfram Ísland
Kvennalið ÍBV sigraði alla sína leiki á Ragnarsmótinu
Styður lengri útivistartíma 10–12 ára barna
Þyrlupallurinn í Surtsey stækkaður
ÍBV tapaði gegn Þrótti R. á Hásteinsvelli
Stefnt að styttingu Hörgaeyrargarðs í lok september
Livey tekur við streymi Olísdeildarinnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.