Gamlir Alþýðuflokksfélagar afhentu Hollvinasamtökum Hraunbúða gjöf
Guðmundur Þ.B. Ólafsson afhendir Halldóru Kristínu Ágústdóttur formanni Hollvinasamtakanna peningagjöfina.

Nokkuð er síðan að formlegri starfsemi Alþýðuflokksfélags Vestmannaeyja lauk og sama má segja um Brautina, blaðaútgáfu sem félagið rak og gaf út á sínum tíma.

Á vef Landsbókasafns Íslands, timarit.is, kom í ljós að Brautin var eitt bæjarblaða sem ekki var skannað inn á vefinn. Samkomulag var gert við Safnahús Vestmannaeyja að skanna alla árganga og tölublöð Brautarinnar gegn greiðslu. Okkur Alþýðuflokksfélögum er sönn ánægja að vita að líklega er Brautin eina blaðið sem ekki er sett á vefinn á kostnað skattgreiðenda.

Á árinu var Brautin, blaðaútgáfa formlega lögð niður með afskráningu á kennitölu. Frá starfseminni lágu fyrir fjármunir, sem gamlir Alþýðuflokksfélagar í Vestmannaeyjum, Kratar, ákváðu að ráðstafa innanbæjar til góðra mála. Að höfðu samráði við forstöðumann og hjúkrunarforstjóra Hraunbúða og í ljósi Covid voru afhentar tvær súrefnisvélar til starfsemi Hraunbúða, sem og er úðavél í pöntun.

Á gamlársdag var, Hollvinasamtökum Hraunbúða, afhent peningagjöf að upphæð 900 þúsund krónur. Að greiddum kostnaði við úðavél verður eftirstöðvum fjármuna einnig færðir Hollvinasamtökunum að gjöf.

Samtals hafa því tæplega 1,3 milljón kr. verið veitt til tækjakaupa á Hraunbúðum og peningagjöf til Hollvinasamtaka Hraunbúða.

Bestu hátíðarkveðjur, gamlir Alþýðuflokksfélagar í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.