Gefandi starf Rauða krossins
DSC_4589
Frá aðalfundinum á fimmtudaginn. Eyjar.net/Óskar Pétur Friðriksson

Í síðustu viku var haldinn aðalfundur Vestmannaeyjadeildar Rauða krossins. Sigurður Ingi Ingason er formaður félagsins.

„Á fundinum var farið yfir hefðbundin aðalfundarmál, s.s. skýrslu stjórnar um starf fyrra árs, ársreikningar lagðir fram til samþykktar, fjárhagsáætlun næsta árs lagðir fram, o.s.frv. Í lokin er orðið laust og þá eru hin ýmsu mál rædd.“ segir Sigurður Ingi í samtali við Eyjar.net.

Aðspurður um breytingar á stjórn segir formaðurinn að ein breyting hafi orðið á varamanni í stjórn, en Guðrún Snæbjörnsdóttir hætti eftir nokkura ára starf og inní varastjórn kom Sara Jóhannsdóttir í hennar stað.

Er Sigurður er inntur eftir hvað framundan sé hjá félaginu segir hann að helstu verkefni Rauða krossins í Vestmannaeyjum séu nokkuð hefðbundin á milli ára, s.s. fatasöfnun í safngámana við Eimskipshúsið niðrá Eiði sem Þórunn Jónsdóttir hefur séð um með miklum myndarskap undanfarin ár.

„Svo vorum við svo heppin að fá til okkar aðila sem kláraði skyndihjálparnám síðastliðið haust, þannig að nú erum við komin með aðila sem getur séð um skyndihjálparnámskeið, eitthvað sem við höfum verið í vandræðum með eftir að við misstum aðila til Reykjavíkur sem hafði séð um námskeiðin.

Svo er eitt og annað sem í gangi, s.s. heimsóknarvinir, Geir Jón Þórisson hefur mætt reglulega uppá Hraunbúðir og lesið fyrir heimilisfólk þar.

Að lokum langar mig að hvetja fólk til að gefa sér tíma í sjálfboðaliðastarf, hvort sem það er hjá Rauða krossinum eða annarsstaðar. Það er vel tekið á móti öllum og starfið er mjög gefandi.“ segir Sigurður Ingi að endingu.

 

Nýjustu fréttir

Milena í eldlínunni með U16 ára landsliðinu
„Þetta hefur verið dans á rósum“ – hættir eftir 50 ára starf
Fær tveggja leikja bann eftir olnbogaatvik gegn FH
Bærinn svarar gagnrýni: Segja starfsánægju hafa aukist síðustu ár
Mugison með tónleika á Skansinum
Eyjagöng fá alþjóðlegan sérfræðing í neðansjávargangagerð til liðs við sig
Umræða skapast um starfsumhverfi hjá Vestmannaeyjabæ
Framkvæmdir hafnar í Miðgerði
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.