Gíslína Dögg sýnir heima og erlendis
Gíslína Dögg við grafíkverkin Í fjöruborði I-III. Listasafnið á Akureyri. Samsýning norðlenskra listamanna, Mitt Rými. Mynd Guðmundur Örn.

Fram undan er mánaðardvöl í nóvember í vinnustofu Edvard Munchs í Osló 

Um þessar mundir er Norðan- og Eyjakonan Gíslína Dögg að sýna grafíkmöppu og verk á nokkrum stöðum á Vesturlandi ásamt öðrum listakonum frá Íslandi og Noregi. Þær eru ásamt Gíslínu, Cathrine Finsrud frá Noregi, Elva Hreiðarsdóttir Íslandi, Hildur Björnsdóttir Íslandi og Noregi, Lill-Anita Olsen Noregi og Soffía Sæmundsdóttir Íslandi.

Kallar hópurinn sig Ecophilosophic Dialogues. Hópurinn var settur saman fyrir nokkrum árum til að skapa tengsl fyrir norska og íslenska listamenn til að miðla hugmyndum, þekkingu og færni og skipuleggja sýningar, vinnustofur og listamannadvöl.  Allar koma listakonurnar með ólíka nálgun og tækni að borðinu þegar unnið er hlið við hlið úti í náttúrunni, heima og heiman.

Grafíkmappan, sem ber heitið BERGMÁL/EKKO var sett saman í Svíþjóð í september á síðasta ári. Var fyrst sýnd í nóvember í norska sendiráðinu á Íslandi og á Hlöðuloftinu á Korpúlfsstöðum í febrúar. Þaðan hefur sýningin farið um Vesturland, fyrst á Hellissandi í listrýminu Þrír veggir og í kirkjuna á Kolsstöðum í Hvítársíðu.  Það er einstaklega skemmtilegt sýningarrými og er hópurinn sá fyrsti sem sýnir verk á þessum stað. Næsti viðkomustaður er Norska húsið á Stykkishólmi en opnunin þar verður 9. ágúst.

Fjaran-Hljóðverk, Listasafnið á Akureyri. Samsýning norðlenskra listamanna, Mitt Rými. Mynd Guðmundur Örn.

Að því loknu fer mappan í Íslenska sendiráðið í Osló í nóvember og á sýningu í Galleri Briskeby í Osló í janúar 2026.

Grafíkmappan samanstendur af 12 grafíkverkum og er hver listakona með tvö verk. Grafíkverkin hennar Gíslínu bera heitin „Í blóma lífsins” og „Vorskuggar” og eru þrykkt í 20 upplögum.

Í þessum verkum sjást konur sem eru í þjóðbúningum sem snúa hvor að annarri og mynda einskonar samtal eða tengingu sín á milli.  Innra með konunum eru blóm frá löndunum tveimur, þ.e. Íslandi og Noregi og eru myndirnar í svarthvítu til að skapa gömul áhrif frá svart hvítum myndum, enda eru konurnar sem Gíslína hef verið að vinna með konur fyrri alda.

Undanfarið hefur Gíslína verið með verk á sýningu á Hlöðuloftinu á Korpúlfsstöðum og hluti af þeim verkum eru nú til sýnis á Listasafni Akureyrar á samsýningu 17 norðlenskra listamanna, sem ber heitið „Mitt rými“, og stendur sú sýning fram í september.

„Fram undan er svo mánaðardvöl í nóvember í vinnustofu Edvard Munchs í Osló og undirbúningur fyrir sýningu í Óðinsvé í Danmörku í apríl á næsta ári. Hún er haldin í tilefni af 50 ára afmæli Fyns Grafiske værksted og var nokkrum grafíklistamönnum af Norðurlöndunum boðin þátttaka,“ segir Gíslína Dögg.

 

Í kirkjunni á Kolstöðum, Bergmál/Ekko. Mynd Gíslína Dögg.

 

Grafíkverkið Vorskuggar. Mynd Gíslína Dögg.

 

Grafíkverkið Vorskuggar. Mynd Gíslína Dögg.

 

Partur af verkinu Í fjöruborði. Listasafnið á Akureyri, samsýning norðlenskra listamanna, Mitt Rými. Mynd Gíslína Dögg.

 

Gíslína Dögg við kirkjuna á Kolstöðum. Bergmál/Ekko. Mynd Soffía Sæmundsdóttir.

 

 

Nýjustu fréttir

Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
50 ár frá opnun sundlaugar Vestmannaeyja

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.