Glæsilegu TM móti lokið - Þróttur R. varð TM móts meistari
Þróttur R. TM móts meistari 2026. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

TM mótinu í fótbolta í Vestmannaeyjum lauk í gær eftir þrjá frábæra keppnisdaga þar sem blíðskaparveður lék við gesti nær allt mótið. Stelpur í 5. flokki fjölmenntu til Eyja og léku listir sínar. 

Landsleikur TM mótsins fór fram á föstudagskvöldið í sól og blíðu. Hann var spilaður á tveimur völlum samtímis og töldu mörkin beggja megin. Leiknum lauk með 4-7 sigri pressuliðsins. ÍBV átti tvo fulltrúa í landsliðinu, þær Elenu Rut Einisdóttur og Ingunni Ásu Fannarsdóttur og stóðu þær sig vel. Landsleikurinn í ár var styrktarleikur fyrir tvær ungar stelpur sem hafa barist við erfiða sjúkdóma og tengjast TM mótinu sterkum böndum, þær Guðbjörg Silla Viðarsdóttir og Kolfinna Rán Færseth. 

Eftir landsleikinn fór fram kvöldvaka þar Tónhylur tróð upp við mikinn fögnuð. Kvöldvakan hófst með því að veitt voru verðlaun fyrir hæfileikakeppnina, sem fór fram á fimmtudagskvöldið, og var það ÍR sem stóð uppi sem sigurvegari. Fram varð í öðru sæti og ÍA í þriðja. Þá hlaut KR viðurkenningu fyrir besta stuðningsatriðið og Skallagrímur fyrir frumlegasta atriðið. 

Á laugardeginum fóru fram úrslitaleikir mótsins. Lið Þróttar R. og Aftureldingar léku til úrslita um sjálfan TM móts bikarinn og var það Þróttur R. sem stóð uppi sem sigurvegari TM mótsins 2026 með 3-0 sigri. Mótinu lauk með grillveislu við Týsheimilið eftir úrslitaleikinn.

Hægt er sjá úrslit úr jafningjaleikjunum sem fóru fram á laugardeginum hér.

Sigfús Gunnar Guðmundsson og Óskar Pétur Friðriksson tóku myndir af upprennandi fótboltastjörnum á mótinu sem hægt er að sjá hér að neðan.

 

 

Nýjustu fréttir

Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Vestmannaeyjabær: Ráðið í stöðu deildarstjóra launadeildar
Tæplega 2.000 farþegar nýttu áætlunarflugið
Rakel býður upp á Reikiheilun í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.