Gleðilegan kjördag
Kæru kjósendur í Vestmannaeyjum. Í dag leggja ég og félagar mínir í Sjálfstæðisflokknum verk okkar undanfarin ár í dóm kjósenda. �?að sem fyrst og fremst greinir okkur frá öðrum framboðum er dýrmæt reynsla við styrka og án alls vafa farsæla stjórnun sveitarfélagsins svo eftir er tekið. Í öllum framboðum eru efnilegir einstaklingar að leggja hönd sína á plóginn við að gera gott samfélag enn betra. Framundan verða miklar breytingar á bæjarstjórn sem að öllum líkindum verður söguleg, að því leyti að hún verður í fyrsta skipti skipuð konum að meirihluta og óska ég Vestmannaeyingum innilega til hamingju með þann áfanga og framboðunum öllum til hamingju með að treysta konum jafnt sem körlum í framlínu sína. �?ó breytingar og endurnýjun séu af hinu góða og nauðsynlegar þá tel ég ekki skynsamlegt að kollvarpa því sem vel hefur gengið. Að endingu óska ég öllum Vestmannaeyingum gleðilegs kjördags og hvet alla til að nýta sinn lýðræðislega rétt sem sannarlega er ekki öllum sjálfgefinn.
Nú kjördagur nálgast óðum
og nóg er af peyjum og fljóðum
sem öll þitt atkvæði vilja,
en eitt þarft þú fyrst að skilja.
Bakarinn brauðið hann brenndi
og íbúum lexíu kenndi
að vera ekki í móinn að malda
heldur kjósa einn flokk til valda.
Samfélag losuðu úr skuldaklafa,
sveitarstjórnarreynslu þau hafa.
Bæjarfulltrúa þurfa nú fjóra
með framhaldsskóla- og útgerðarstjóra.
Sameinuð tryggt hafa samgöngur betri,
sýnt hafa kjark sinn á nýliðnum vetri.
Bættu vel þjónustu við foreldra og börn,
boðuðu hvali en ekki ísbjörn.
Við Hamarsskóla hús vilja byggja,
á hugmyndum sínum þau ekki liggja.
Ef bæjarstjóri vilt að Elliði sé
þá seturðu einfaldlega x við D
(HSS)

Nýjustu fréttir

„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Hugrekki er oft bara að halda áfram
Skólanum slitið á Stakkó
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir með 9,0 í meðaleinkunn
Íris ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra ára
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.