Gleraugun nauðsynleg þegar sólmyrkvinn skellur á
Enn til gleraugu úr fjáröflun 3. flokks ÍBV – TM gefur viðskiptavinum sólmyrkvagleraugu - Króna selur sólmyrkvagleraugu – Aldrei má horfa óvarinn í sólina

Enn til gleraugu úr fjáröflun 3. flokks ÍBV – TM gefur viðskiptavinum sólmyrkvagleraugu Króna sólmyrkvagleraugu – Aldrei má horfa óvarinn í sólina

Nú styttist í einn athyglisverðasta viðburð ársins þegar sólmyrkvi verður miðvikudaginn 12. ágúst. Í Vestmannaeyjum verður myrkvinn sérstaklega tilkomumikill og því má búast við að margir horfi til himins.

Þá er eins gott að vera rétt útbúinn. Aldrei má horfa beint í sólina án viðeigandi augnvarna og venjuleg sólgleraugu duga ekki, sama hversu dökk þau eru. Nota þarf sérstök sólmyrkvagleraugu.

Enn til gleraugu hjá Láru Dögg

Lára Dögg Möggudóttir á enn sólmyrkvagleraugu sem voru seld í fjáröflun fyrir 3. flokk ÍBV í knattspyrnu sem í sumar tók þátt í Gothia Cup í Svíþjóð, einu stærsta unglingamóti heims í knattspyrnu.

Enn eru til gleraugu og bendir Lára Dögg þeim sem vilja tryggja sér eintak á að fara inn á Facebook-síðu hennar og senda henni skilaboð. Hún tekur niður pantanir á meðan birgðir endast.

TM gefur gleraugu

TM hefur sömuleiðis tilkynnt viðskiptavinum sínum að félagið gefi sólmyrkvagleraugu á meðan birgðir endast. Þau má nálgast í útibúum félagsins. „Við viljum að þú getir notið þessarar einstöku stundar á öruggan og skemmtilegan hátt,“ segir í tilkynningu frá TM.

Nú er því um að gera að tryggja sér gleraugun í tíma. Svo er bara eitt eftir og vona að veður verði gott miðvikudaginn 12. ágúst og skýin haldi sig fjarri þegar sýningin hefst.

Krónan selur líka sólmyrkvagleraugu í verslunum sínum á 499 kr. stykkið.

 

Nýjustu fréttir

Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV 
Hekla bætti eigið met og varð efst kvenna
Vilja taka upp daggjald í Frístund
Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.