ÍBV heimsótti Akureyri í 6. umferð Olís-deildar karla í dag í bráðskemmtilegum leik þar sem bæði lið þurftu virkilega á sigri að halda.
Leikurinn var mjög kaflaskiptur í fyriri hálfleik. Eyjamenn byrjuðu betur en Akureyringar tóku þá við sér og komust yfir. Góður endasprettur ÍBV tryggði þeim svo 13:16 forystu þegar gengið var inn í hálfleik.
Sveiflan hélt áfram í síðari hálfleik. Akureyringar byrjuðu betur og komu sér strax inn í leikinn. Jafnræði var þá með liðum þar til um tíu mínútur voru eftir að Eyjamenn stungu einfaldlega af.
Kolbeinn Aron Ingibjargarson einfaldlega lokaði marki Eyjamanna og skoruðu heimamenn ekki mark á síðustu níu mínúum leiksins. Lokatölur Akureyri 22 – ÍBV 29.
Kolbeinn Aron varði samtals 20 skot í marki Eyjamanna. Markahæstur í liði ÍBV var Kári Kristján Kristjánsson með 10 mörk, þar af 4 úr víti. Aðrir markaskorarar voru 7 – Fannar Þór Friðgeirsson (7), Theodór Sigurbjörnsson (4), Sigurbergur Sveinsson (3), Kristján Örn Kristjánsson (2), Elliði Snær Viðarsson (1), Daníel Örn Griffin (1) og Hákon Daði Styrmisson (1).
ÍBV situr í sjötta sæti deildarinnar eftir fimm umferðir með sex stig. Næsti leikur liðsins er í Eyjum mánudaginn 5. nóvember gegn Val.
[add_single_eventon id=”61525″ ev_uxval=”3″ ]




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.