Góður sigur hjá stelpunum
ÍBV tók á móti Fylki í dag í Pepsi deild­a kvenna þar sem ÍBV hafði betur 3-2 í fjörugum leik. ÍBV byrjaði leikinn betur og Cloe Lacasse kom ÍBV yfir strax á 10. mín­útu eftir að hafa fengið sendingu inn fyrir vörn Fylkis. ÍBV var sterkari aðilinn fyrsta hálftímann og komust í nokkur ákjósanleg færi. Fylkir jafnaði svo metin eftir tæplega hálftíma leik en þar var á ferðinni Aivi Luik, hún fékk sendingu inn fyrir vörn ÍBV og setti boltann örugglega fram hjá Bryndísi Lári í marki ÍBV. Staðan í hálfleik 1-1
Seinni hálfleikur var mjög fjörugur og voru markmenn beggja liða í aðalhlutverki fyrst um sinn og hefðu bæði lið getað verið búin að skora. Á 64. mínútu kom fyrirliðinn �?órhildur �?lafsdóttir ÍBV í 2-1. Boltinn barst til �?órhildar eftir aukaspyrnu og smá klafs í teignum en á endanum fór boltinn inn. ÍBV hélt forystunni ekki lengi því en fyr­irliði Fylk­is, �?lína G. Viðarsdótt­ir, jafnaði með skallamarki eftir hornspyrnu. Eyjastelpur tóku þá miðju og brunuðu upp völlinn, varamaðurinn Sesselja Líf Valgeirsdóttir sem nýlega hafði verið skipt inn á var komin inn í teig Fylkis þar sem varnarmaður þeirra braut á henni og vítaspyrna dæmd. Sesselja Líf þurfti frá að hverfa eftir þessi samskipti við varnarmann Fylkis. Kristín Erna Sigurlásdóttur fór á punktinn en markmaður Fylkis, Eva Ýr Helgadóttir varði vel.
Sigríður Lára Garðarsdóttir innsiglaði svo sigur ÍBV á 81. mínútu. Und­ir lok leiks var leikmönnum heitt í hamsi og lyfti dómari leiksins fjórum spjöldum á nokkurra mínútna kafla. Ruth �?órðar �?órðardótt­ir í liði Fylk­is fékk að líta rauða spjaldið fyr­ir að slá til Natöshu Anasi, sem hafði togað í treyju henn­ar en Anasi fékk að líta gult spjald fyr­ir brotið.
ÍBV styrkti stöðu sína í 5. sæti og eru nú með 25 stig, tveimur stigum á eftir �?ór/KA.

Nýjustu fréttir

Síldarveiðar í fullum gangi hjá Vinnslustöðinni
Emil og félagar í U17 áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027
Íris hvetur þingmenn til að skipuleggja ferðina út frá „löngu leiðinni“
Göngustígur kominn að Sjónarhorni Flakkarans
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar síðdegis
Dýpkuðu 32 þúsund rúmmetra við Landeyjahöfn
Logn og bros á Stórhöfða
Slökkviliðsstjóri söðlar um eftir tíu ár í starfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.