GOSLOKAHÁTÍÐ 2019 –  Góðar hugmyndir vel þegnar

Undirbúningur Goslokahátíðar næsta árs er byrjaður. Goslokanefndin hefur hafið störf og nú þegar liggja fyrir fyrstu drög að dagskrá og skipulagi.

Goslokanefnd í ár skipa: Drífa Þöll Arnardóttir, Tinna Tómasdóttir, Sigurhanna Friðþjófsdóttir og Kristín Jóhannsdóttir. Nefndin starfar náið með Angantý Einarssyni framkvæmdarstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs og Jóhanni Jónssyni rekstrarstjóra Þjónustumiðstöðvar.

Sem fyrr er unnið að fjölbreyttri og metnaðarfullri dagskrá, enda hátíðin búin að festa sig í sessi og laðar að fólk á öllum aldri, sem kemur víða að. Nefndin vill hér með undirstrika að hún er opin fyrir öllum góðum hugmyndum um dagskrárliði. Þeir sem þær hafa eru beðnir um að hafa sambandi í gegnum:  postur@vestmannaeyjar.is  eða í síma 4882000

Stefnd er að því að kynna fyrstu dagskrárliði fljótlega á nýju ári.

Nýjustu fréttir

Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Erlingur hefur snúið gengi Minden við – þrír sigrar í röð
Telja að tilkynna megi um vernd 1,6% hafsvæða
ÍBV og Fram mætast í toppslag í Eyjum
Bikarævintýri ÍBV 2 heldur áfram gegn Þór í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.