Mánudaginn 23. janúar opnum við í Einarsstofu í Safnahúsinu sýningu um eldgosið sem við nefnum Eldgos – aflvaki sagna og sigra. Á sýningunni getur að líta margvíslegar heimildir úr Bóka-, Skjala- og Byggðasafni um örlagadaga Vestmannaeyja. Jafnframt höfum við tekið saman listaverk eftir ýmsa listamenn úr Eyjum er grunlausir mála svæði er síðar varð horfinn heimur.