Gosmengunin nær til Vestmannaeyja
Smáeyjar sveipaðar blári gosmóðu.

„Allar mælingar sýna að þetta eldgos sé það stærsta á svæðinu frá því að jarðhræringarnar hófust haustið 2023. Það eru mælingar sem hafa verið gerðar á hraunbreiðunni hingað til og líkanreikningar sem áætla magn kviku sem fór úr Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina þegar eldgos hófst,“ segir á vef Veðurstofunnar um gosið sem hófst á fimmtudagskvöldið.

Vel sást til gossins frá Vestmannaeyjum fyrsta kvöldið og  nú hefur mengun frá því borist til Eyja. Gos­meng­un­in mun ekki vera það mikil að það stafi hætta af henni nema fyr­ir mjög viðkvæma.  ein­stak­linga.

Á mbl.is segir: Portú­galsk­ir fjöl­miðlar greina frá því að há gildi brenni­steins­meng­un­ar muni mæl­ast á eyj­unni Madeira í Atlants­hafi í dag og á morg­un, en rekja má meng­un­ina til eld­goss­ins á Reykja­nesskaga. Bent er á í um­fjöll­un miðils­ins JM að meng­un­in geti hindrað önd­un auk þess sem hún get­ur ert augu, nef og háls.

Madeira­eyj­ar eru lít­ill eyja­klasi um 520 km und­an vest­ur­strönd Norður-Afr­íku og um 400 km norður af Kana­ríeyj­um.

Gosið sást vel frá Eyjum á fimmtudagskvöldið eins og þessi mynd Björgvins Björgvinssonar sýnir.

Nýjustu fréttir

Bleikur blær í Skipalyftunni
Fallegur dagur — nýtt myndband
Sveigjanleikinn skiptir mestu máli 
Bleikar kræsingar í morgunkaffinu hjá Vinnslustöðinni
Rúmlega 1,6 milljónir til góðra málefna eftir metkvöld í Höllinni
Afköstin meiri í fjarvinnu
Ein ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjarnar lönduðu 69 tonnum eftir stutta túra vegna brælu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.