Gott fiskirí miðað við árstíma
Ísfisktogarinn Vestmannaey VE er að landa fullfermi eða um 70 tonnum í Vestmannaeyjum í dag. Systurskipið Bergey VE er síðan væntanlegt síðar í dag einnig með fullfermi. Afli Vestmannaeyjar er fyrst og fremst ýsa og ufsi en afli Bergeyjar er ýsa og karfi. Bæði skipin voru að veiðum á Papagrunni. Hér er um að ræða aðra löndun skipanna eftir sjómannadag en þau lönduðu góðum afla 11. júní sl. Þá var afli Vestmannaeyjar mest þorskur en afli Bergeyjar blandaður.
Egill Guðni Guðnason var skipstjóri á Vestmannaey í síðustu veiðiferð og segir hann að aflinn hafi verið ágætur miðað við árstíma. „Við vorum einungis í þrjá sólarhringa að veiðum, tvo sólarhringa í ýsu og einn í ufsa. Það er bara býsna gott,“ segir Egill.
Skipin munu halda til veiða á ný á fimmtudag

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.