Greiðsluþátttaka vegna tæknifrjóvgunar aukin umtalsvert
Mynd/Pexels

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð sem kveður á um aukna greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í kostnaði þeirra sem fara í tæknifrjóvgun. Þegar reglugerðin tekur gildi verður greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna tæknifrjóvgunar orðin meiri en hún hefur áður verið. „Það er ánægjulegt að geta gert þessa breytingu, því hún jafnar aðgengi fólks að mikilvægri þjónustu“ segir ráðherra í frétt hjá Stjórnarráðinu.

Aukinn kostnaður ríkissjóðs vegna þessara breytinga er áætlaður um 40 milljónir króna á ári. Þegar reglugerðin tekur gildi verður greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna tæknifrjóvgunar orðin meiri en hún hefur áður verið. Greiðsluþátttakan miðast við gjaldskrá fyrir þessa þjónustu sem Sjúkratryggingar Íslands gefa út og hefur verið staðfest af ráðherra.

Breytingarnar eru eftirfarandi:

  • Hlutdeild sjúkratrygginga hækkar úr 30% í 65% vegna annarrar meðferðar í glasa- eða smásjárfrjóvgun.
  • Fyrir þriðju og fjórðu meðferð í glasa- eða smásjárfrjóvgun verður greiðsluþátttaka sjúkratrygginga 65% en hún var engin fyrir.
  • Hlutdeild sjúkratrygginga vegna fyrstu meðferðar í glasa- eða smásjárfrjóvgun hækkar úr 5% í 65% ef um er að ræða ófrjósemisvandamál vegna lyfjameðferðar, geislameðferðar eða beinmergsflutnings. Hjá öðrum verður greiðsluþátttakan óbreytt.
  • Sjúkratryggingar munu eftir reglugerðarbreytinguna taka þátt í kostnaði við frystingu á fósturvísum.

Nýjustu fréttir

Ólöf María snýr aftur í ÍBV og gerir tveggja ára samning
Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.