Gröfuþjónusta Brinks lægstbjóðandi í gatnagerð og fráveitu í Miðgerði
Skýringarmynd sem sýnd er í deiliskipulagi fyrir austurbæinn.

Tilboð í gatnagerð og fráveitu í Miðgerði voru opnuð 20. apríl síðastliðinn og bárust alls þrjú tilboð í verkið. Verkefnið felur í sér gatnagerð og uppbyggingu fráveitu í Miðgerði.

Lægsta tilboðið kom frá Gröfuþjónusta Brinks ehf. og hljóðar það upp á 83.999.961 krónu. Tilboðið er töluvert undir kostnaðaráætlun sem nam 117.215.500 krónum, eða um 33 milljónum lægra.

Önnur tilboð sem bárust voru: frá HS Vélaverk ehf.: 95.595.252 kr. og frá Línuborun ehf. uppá 159.656.500 kr.

Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að taka tilboði lægstbjóðanda og falið sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að ganga til samninga við Gröfuþjónustu Brinks á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs.

Nýjustu fréttir

Malbik, hraun og list í Eyjum
Þak sett á afslátt Loftbrúar
Brattir þrátt fyrir bræluna
Spennandi vetur hjá fimleikafélaginu Rán
Eyjamenn sækja Val heim í mikilvægum leik
Eyjakonur geta tryggt þriðja sætið á Hásteinsvelli
Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna
Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.