Grunnforsendur nýrrar ferju brostnar
Í ný undirskrifuðum samningi milli Vestmannaeyjabæjar og Vegagerðarinnar er fallið frá grunnforsendum við hönnun nýrrar ferju fyrir Vestmanneyinga.
Orðrétt segir í samningnum:�?? Viðmiðunarmörkin eru ákveðin 3,5 m hæð kenniöldu miðað við stórstraumsfjöru og sveiflutíma vatnsdýpi á rifi 6,5 m og í hafnarmynni 6 m í stuttri öldulengd�??.
Svipað viðmið og er í dag
Í forsendum fyrir nýju ferjunni stendur að hún geti örugglega siglt þegar kennialda á dufli við Landeyjahöfn er 3,5 m og dýpi á rifi 5 m og dýpi í hafnarmynni 4,5 m. Í samningnum góða er sem sagt gert ráð fyrir að til að uppfylla skilyrði fyrir því að sigla í 3,5 m ölduhæð þurfi dýpið að vera 1,5 m meira á rifi og í hafnarmynni.
Með öðrum orðum, til að nýja ferjan geti uppfyllt hönnunarkröfur þá má kennialdan ekki vera meiri en 2,0 metrar á dufli, eða svipað og í dag.
Sparnaðurinn virðist gufaður upp
�?etta þýðir að það verður í raun lítill sem engin munur á getu nýju ferjunnar og núverandi Herjólfs í siglingum til Landeyjahafnar, en mikill munur þegar siglt er til �?orlákshafnar, en gert er ráð fyrir 71 degi þangað á ári. Í minnisblaði unnið fyrir bæjarráð 4.12.2014 kemur fram að árlegur sparnaður við dýpkun fyrir nýja ferju sé 140 milljónir á ári. Sá sparnaður virðist gufaður upp.
Samgöngur á sjó eru ekki gamanmál. Er ekki kominn tími til að breyta um lið til að gæta okkar hagsmuna?
�??�?að þarf kjark til að breyta�??
Kjósum með hjartanu Fyrir Heimaey. X-H á kjördag.
Sveinn Rúnar Valgeirsson
Höfundur skipar 6. sæti á lista Fyrir Heimaey í komandi bæjarstjórnarkosningum.

Nýjustu fréttir

Kíkt inn á kosningavökur framboðanna
Lokatölur: Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meirihluta
Fimm menn hjá D-lista samkvæmt fyrstu tölum
Kíkt í kosningakaffi framboðanna – myndir
Herjólfur stefnir á hefðbundna sjö ferða áætlun frá mánudegi
ÍBV mætir FH í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Talning hefst upp úr klukkan 22 – fyrstu tölur um hálf ellefu
ÍBV stelpurnar unnu Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.