Grunur um COVID-smit í Kap II
Kap II í Vestmannaeyjahöfn

Vísbendingar eru um COVID-smit í áhöfn Kap II og þess vænst að niðurstöður skimunar leiði í ljós síðar í dag eða í kvöld hvort veikindin skýrist af veirunni eða einhverju öðru.

Skipið var að veiðum þegar grundsemdir vöknuðu um veirusmitið. Það kom til Grundarfjarðar í morgun og tekin voru sýni sem fá flýtimeðferð í rannsókn.

Áhöfnin er í sóttkví um borð og verður ekki landað úr skipinu á meðan beðið er niðurstöðu skimunar.

Alls átta manns í áhöfn Kap hafa einhver veikindaeinkenni en mismikil og líðan þeirra er sögð bærileg. Fimm hafa engum einkennum lýst.

Nýjustu fréttir

Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.